Í áfanganum læra nemendur um almenn grunnatriði byggingaruppdrátta með áherslu á steinsteypuvirki. Byrjað er á að fjalla um teiknistaðla og framsetningu á uppdráttum s.s. grunnmyndir, sneiðingar, lóðrétta og lárétta sérhluta, málsetningu, tilvísanir og textun. Nemendur fá þjálfun í að gera einfalda uppdrætti af steinsteyptu einbýlishúsi þar sem komið er inn á algengar útfærslur, hönnunarforsendur í byggingarreglugerð og stöðlum, verklýsingar, helstu fagheiti, teiknitákn m.m. Lögð er áhersla á að þjálfa notkun og skilning á hvers konar verkgögnum sem tengjast steypuvirkjum og sérhlutum múraraiðnar og teikningu rissmynda við útfærslur deililausna. Nemendur gera einfalda efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli hönnunargagna. Megináherslan er á verkefnavinnu og mikilvægt er að nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum við upplýsingaleit og úrvinnslu.
GRTE1GN04BB
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum hönnunarforsendum steinsteypuvirkja.
ákvæðum reglugerðar um byggingarefni húsa, gerð og burðarþol.
íslenskum stöðlum um steinsteypu og steinsteypuvirki.
tæknilegum útfærslum vegna álags og einangrunar.
öllum gerðum uppdrátta og teikninga og öllum almennum teiknitáknum.
fagheitum sem snerta almenna uppdrætti og teikningar.
reglum um blaðstærðir, mælikvarða og teikniáhöld.
teikniaðferðum og teiknireglum fyrir grunnmyndir og séruppdrætti.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
styðjast við Rb‐blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga.
rissa og teikna einfalda uppdrætti af steinsteyptu einbýlishúsi.
lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar.
gera einfalda efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli teikninga.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa og vinna með uppdrætti og teikningar af steinsteypuvirkjum.
gera uppdrætti af húsi og sýna deililausnir af sérhlutum múrsmíða.
gera fríhendisrissmyndir af sérlausnum og sneiðingum.