Í áfanganum læra nemendur teikningalestur og teikningu loftræstra útveggjaklæðninga með náttúrusteini og keramikflísum auk stigateikningar. Jafnframt er fjallað um byggingar og mannvirki úr forsteyptum einingum. Eins og áður er lögð áhersla á hönnunarforsendur í reglugerðum og stöðlum, verklýsingar með tilliti til efniskrafna og aðferða, fagheiti, teiknitákn m.m. Nemendur kynnast notkun tölvutækni við lestur og miðlun uppdrátta og annarra hönnunargagna. Kennslan byggir á verkefnavinnu ásamt fræðslu og upplýsingum frá kennara.
TEIK3MR04BB
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tæknilegum útfærslum forsteyptra bygginga‐ og mannvirkja.
algengustu teikniforritum á tölvu og notkun þeirra við gerð og miðlun uppdrátta.
ákvæðum reglugerðar um útveggi, klæðningar og einangrun.
helstu gerðum og útfærslum forsteyptra húseininga.
reglum sem gilda um útfærslur mismunandi stigagerða.
stöðluðum málum á steinveggjum, klæðningagrindum og einangrun.
stigum, útveggjaklæðningum og forsteyptum húseiningum.
ákvæðum byggingareglugerðar um stiga og stigahús.
reglum um blaðstærðir, mælikvarða og teikniáhöld.
teikniaðferðum og teiknireglum fyrir stiga og loftræstar klæðningar.
gerðum uppdrátta og teikninga og öllum almennum teiknitáknum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
styðjast við Rb‐blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga.
átta sig á tæknilegum útfærslum vegna loftunar og einangrunar og annarra hönnunargagna.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa og vinna með teikningar af stigum, útveggjaklæðningum, byggingum og mannvirkjum úr forsteyptum einingum.
lesa og skilja merkingar og verklýsingar á teikningum.
gera efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli uppdrátta.
geta teiknað steinsteypta stiga, útveggjaklæðningar og forsteypta mannvirkjahluta.
gera vinnu‐ og deiliteikningar af steyptum stigum og útveggjaklæðningum.