Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1570633026.72

    Vélfræði 1
    VÉLF1GR05
    5
    Vélfræði
    Vélfræði 1
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur öðlast fræðilega og hagnýta grunnþekkingu í vélfræði. Fjallað er um mismunandi form orku, afls og orkunýtingu til að auka skilning á þessum hugtökum. Lögmál varmafræðinnar um óforgengileika orkunnar eru kynnt ásamt SI-mælieiningakerfinu. Eldsneytisnotkun bulluvéla og orkuforði. Fjallað er um nýtni bulluvéla, pV-línurit og pt-línurit. Meðalþrýstingur pmi fundinn í pV-línuriti með lóðlínuaðferðinni. Reiknað framleitt afl dísilvéla. Samhengi þrýstings og hitastigs.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim þáttum sem hafa áhrif á aflframleiðslu véla
    • samhengi aflframleiðslu og hinna ýmsu stærða bulluvéla
    • aðferðum við mælingar á meðalþrýstingi
    • lögmálum varmafræðinnar um varðveislu orkunnar
    • aflmælingum véla með notkun hemla
    • þjöppunarhlutfalli og rúmmálamælingum á vélum
    • samhengi aflframleiðslu, álags og hvernig inngrip í aflframleiðsluna hefur áhrif á starfsemi vélarinnar
    • eldsneytisnotkun, orkunýtingu og orkutapi
    • vinnslu á fljótandi eldsneyti og helstu eiginleikum þess
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • snúa formúlum
    • lesa út úr ritmynd vélar
    • mæla ritmyndir og finna pi, pmax, pþjapp
    • leiða út formúlur sem fyrir koma í námsefninu og beita þeim við lausn verkefna
    • reikna út forðaradíus
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra samhengi þrýstings og hitastigs og finna þjöppunarhlutfall
    • nýta ritmyndir til einfaldra bilanagreininga
    • setja fram útreikning á skipulagðan og snyrtilegan hátt
    • útskýra gildi breyta í formúlum
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.