Farið í uppbyggingu og virkni brunavéla. Öll kerfi og íhlutir teknir fyrir. Nemendur þjálfaðir í keyrslu véla og umgengni um öll kerfi sem tilheyra þeim þannig að þeir séu hæfir til að stjórna og bera ábyrgð á keyrslu þeirra. Tekin fyrir þau öryggisatriði sem þarf að hafa í hávegum fyrir vélstjóra og þá sem annast vélbúnað og vinnustaði vélstjóra.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnuhringjum brunavéla.
gerðum, uppbyggingu og eldsneyti aflvéla.
uppbyggingu, notkun og eiginleikum hæg og hraðgengra bulluvéla.
aðstreymi lofts og eldsneytis í Ottó og dísilvélum.
skipsvélakerfum og uppbyggingu þeirra.
kæliþörf brunavéla.
gangsetningakerfum bulluvéla og þeim reglum sem gilda um þau.
umhirðu og umgengni véla og vélarúma.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nafngreina helstu íhluti véla og lýsa hlutverki þeirra.
nota handverkfæri á réttan hátt.
lesa úr vganga um vélar og verkstæði með tilliti til hreinlætis og öryggisélateikning.um.
ganga um vélar og verkstæði með tilliti til hreinlætis og öryggis.
undirbúa dísilvél fyrir gangsetningu og gangsetja hana.
ganga frá vél og vélarúmi eftir stöðvun og gera vélarúm frostklárt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
teiknað upp og útskýrt vinnuhringi tví- og fjórgengisvéla, dísil- og Ottóvéla.
rekja og teikna upp helstu vélakerfi.
unnið sjálfstætt á vélaverkstæði m.t.t umgengni og öryggismála
undirbúið vél fyrir gangsetningu og ræst hana.
útskýrt bæði ytri og innri kælibúnað véla.
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.