Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1571233422.2

    Samsköpunaraðferðir
    LEIK3SK05
    5
    leiklist
    samsköpunaraðferðir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Samsköpunaraðferðir í leiklist eru skoðaðar ítarlega og hugmyndafræði aðferðanna eru kynntar. Nemendur kynnast hugtakinu „opnun“ og þurfa að gera mörg verkefni þar sem sérstök áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu. Áhersla er lögð á að nemendahópurinn komist að sameiginlegri niðurstöðu um þau viðfangsefni sem lögð eru til grundvallar hinu skapandi starfi. Einnig er lögð áhersla á sameiginlegt sköpunarferli og framlag hvers og eins í ferlinu.
    LEIK2SV05 LEIK2BS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu samsköpunaraðferðum í leikhúsi
    • fjölbreyttum leiðum til frumsköpunar í leikhúsi
    • hvernig samsköpunaraðferðir virka
    • mikilvægi þess að vinna uppbyggilega og faglega með öðrum
    • leiðum til þess að búa til sviðsverk sem speglar hugmyndir og sýn nemenda á samfélagið
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna í hópi að sameiginlegu leiklistarverkefni
    • tjá sig á skýran og gagnrýninn hátt um gefið viðfangsefni í leiklist
    • skipuleggja samsköpunarverkefni frá grunni
    • greina hvenær leikhús og atriði eru dýnamísk og full og hvernig þau spegla samfélag sitt á ólíkan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota helstu samsköpunaraðferðir við mótun á sviðlistaverki
    • tjá skoðanir sínar á sviðslistum á ábyrgan, gagnrýninn og skýran hátt
    • greina hvað er hlaðið merkingu í leikhúsi og samfélaginu og hvað ekki
    • skapa sjálfstætt, dýnamískt, áhrifaríkt og vel ígrundað sviðslistaverk
    • meta eigið vinnuframlag
    • sýna ríkan skilning á hvernig leikhúsformið getur verið dýnamískt og listrænt
    • nýta sér leikhúsformið til að spegla samfélag sitt og setja það í nýtt samhengi