Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1571236110.58

    Rafsegulsfræði
    EÐLI3RA05
    34
    eðlisfræði
    rafsegulsfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr rafsegulfræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
    EÐLI2GÁ05 og STÆR3HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • því hvernig rafhleðsla hlutar á upptök sín í hleðslum öreindanna.
    • kraftalögmáli Coulombs.
    • sviðshugtakinu og rafsegulbylgjum.
    • spennu og rafstöðuorku, tapi á orku í færslu rafmagns.
    • helstu hugtökum sem notuð eru í rafsegulfræðinni og SI-einingum þeirra.
    • lögmáli Ohms og reglum Kirchhoffs.
    • rökrásum, hliðtengingumog raðtengingum.
    • lögmáli Laplace.
    • spani og spólum.
    • verkun nokkurra tækja sem byggja á lögmálum rafsegulfræðinnar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum.
    • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi.
    • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum.
    • vinna með fjölmæla og ýmsa rafhluti við að framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra, m.a. með tölvuforritum.
    • beita hægrihandarreglunni.
    • setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt.
    • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið.
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar.
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar.
    Verkefni og próf.