Kenndar eru ýmsar aðferðir tengdar frágangi á dömu - og herrafatnaði. Lögð er áhersla á notkun og beitingu mismunandi saumaáhalda. Saumaðar eru ýmsar prufur, bæði vélsaumaðar og handsaumaðar, fjallað um tilgang þeirra og notagildi. Einnig er farið í gerð ýmissa skreytinga á fatnaði. Nemendur halda vinnubók sem inniheldur prufur, verklýsingar og vinnuteikningar.
Grunnnám fataiðna
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum aðferðum tengdum handverki og sérsaumi.
nauðsyn vandaðra vinnubragða.
tilgangi og notagildi mismunandi aðferða við frágang á fatnaði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota margvísleg saumaáhöld.
falda og ganga frá flíkum með hand- og vélsaum.
koma sér upp vandaðri og aðgengilegri vinnubók sem nýtist sem uppflettirit.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nota ýmis saumaáhöld og meta hvernig þau henta verkefnum, formi og efnisgerð.