Í áfanganum kynnast nemendur rannsóknaraðferðum félags- og náttúruvísinda. Nemendur læra gagnaöflun og úrvinnslu í megindlegum og eigindlegum aðferðum. Lögð er áhersla á hagnýtingu rannsóknaraðferðanna með annað nám í huga.
Tölfræði og að nemandi sé á lokaári stúdentsbrautar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
megindlegum og eiginlegum aðferðum, kostum þeirra og göllum
kenningum vísindanna og tengingu þeirra við rannsóknaraðferðir
siðferðilegum álitamálum í rannsóknum
gæðum rannsókna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita megindlegum og eigindlegum rannsóknaraðferðum
leggja mat á siðferðileg álitamál í rannsóknum
lýsa vísindalegu rannsóknarferli og beita því á valin rannsóknarefni
varpa fram rannsóknarspurningu og setja fram tilgátur um valin rannsóknarefni
vinna úr megindlegum og eigindlegum gögnum og koma þeim til skila á skilmerkilegan máta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita skipulögðum vinnubrögðum á gagnrýninn hátt við lausn verkefna
geta framkvæmt einfalda fræðilega rannsókn
meta hvaða rannsóknaraðferðir skuli beita við rannsókn eftir eðli viðfangsefna
leggja gagnrýnið mat á niðurstöður rannsókna sem kynntar eru í fjölmiðlum
vinna á sjálfstæðan hátt að einfaldri rannsókn
Fjölbreytilegt námsmat með áherslu á símat, tíða endurgjöf og leiðsögn. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir einstaklings- og hópverkefni og stutt próf eftir atvikum.