Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1571826322.68

    Lestur góðra bóka
    ÍSAN3LG05
    3
    íslenska sem annað mál
    Lestur góðra bóka
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er ætlaður nemendum sem ekki hafa íslensku sem móðurmál. Markmiðið er að þeir þjálfist í að lesa bókmenntir á íslensku, segja frá efni lesinna bóka og tjá eigin skoðanir á þeim að lestri loknum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • höfundi bókar og ritunartíma
    • helstu lögmálum sem gilda í skipulegum munnlegum frásögnum
    • orðaforða sem notaður er við umfjöllun um skáldsögur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig munnlega á greinargóðu máli um efni bókar
    • setja saman munnlega greinargerð um skáldsögu á lipran hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita tungumálinu á viðeigandi hátt í frásögn
    • tjá rökstudda afstöðu sína til efnis og boðskapar
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu texta
    • sýna víðsýni, skilning og sanngirni í málflutningi og afstöðu sinni til efnis
    Námsmat byggir á frammistöðu nemenda við að gera grein fyrir lesnum bókum.