Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1572875663.28

    Leiklistarhátíð á Möltu
    LEIK3MA03
    7
    leiklist
    Leiklistarhátíð á Möltu
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Nemendur vinna leiksýningu sem þeir sýna á Holqa Theatre leiklistarhátið sem haldin er í menntskólanum Junior Collage í bænum Valletta á Möltu. Þessi leiklistarhátíð er haldin ár hvert en leiklistarbraut FG mun bjóða upp á áfangann annað hvert ár. Í áfanganum er unnin leiksýning sem sýnd verður á leiklistarhátíðinni. Nemendur vinna ásamt leiðbeinanda sjálfstætt verk út frá þemum sem tengjast hverri hátíð. Unnið er út frá samsköpun og er mikil áhersla lögð á sjálfstæði og vinnusemi. Nemendur þurfa sjálfir að standa straum af ferðakostnaði og þátttökugjöldum en leiklistarhátíðin sér þátttakendum fyrir fæði og gistingu meðan á hátíðinni stendur. Reynt verður að skipta jafnt eftir kynjum í hópinn. Eingöngu geta 20 nemendur af leiklistarbraut valið áfangann og skilyrði fyrir þátttöku eru að nemendur séu ekki hluti af leikhópi söngleiksins (á þessum tíma eru sýningar í gangi), séu 18 ára á ferðaárinu og skráðir í skólann þá önn sem hátíðin er fyrirhuguð.
    LEIK3SK05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • samvinnu
    • mikilvægi þess að komast að sameiginlegri niðurstöðu í hópavinnu
    • heildstæðu listrænu ferli, frá æfingum til sýningar
    • að leiklist er alþjóðlegt „tungumál“
    • því sem við eigum sameiginlegt með öðrum þjóðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka tillit til annarra í hópavinnu
    • nýta ólíkar aðferðir í leiklist við að búa til leiksýningu
    • vinna í hópi í listrænu ferli
    • eiga uppbyggilegt samtal um listrænt ferli
    • vinna í alþjóðlegu umhverfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja saman leiksýningu
    • taka tillit til ólíkra þarfa og hugmynda í hópavinnu
    • nýta leiklist sem aðferð til samvinnu og skilnings þvert á þjóðerni og tungumál
    • deila hugmyndum sínum með öðrum þjóðum