Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1573051384.47

    Trésmíði og handavinna
    TRÉS1SA07(AB)
    15
    trésmíði
    Trésmíði
    Samþykkt af skóla
    1
    7
    AB
    Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í notkun hand- og rafmagnshandverkfæra og trésamsetninga. Haldið er áfram umfjöllun um efnisfræði tréiðna þar sem ítarlegar er farið í ýmsa eðliseiginleika viðar, flokkun, merkingar og þurrkun. Tekið er fyrir val og umhirða á verkfærum s.s. stillingar og brýnsla. Nemendur læra að nota hefilbekki og stilla með áherslu á góða vinnuaðstöðu. Kennslan byggir að hluta á fyrirlestrum þar sem kennari útskýrir grunnatriði fyrir nemendum en stærsti hlutinn eru fjölbreytileg smíðaverkefni sem byggja á markmiðum áfangans. Fjallað er um algengustu lofthandverkfæri sem notuð eru í tré‐ og byggingaiðnaði, meðferð þeirra og viðhald. Kynntar eru mismunandi loftpressur. Kennsla í áfanganum byggir á innlögnum frá kennara þar sem hann útskýrir grunnatriði fyrir nemendum.
    VGRT1GN04AB
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • umgengni og notkun rafmagnshandverkfæra og annarra handverkfæra.
    • öryggisþáttum og viðhaldi rafmagnshandverkfæra.
    • vinnuaðstöðu og vinnumhverfi.
    • algengasta smíðavið og smíðisfestingum.
    • helstu eðliseiginleikum viðar og þurrkun timburs.
    • flokkun og merkingum timburs eftir styrk og útliti.
    • smíðisfestingum sem notaðar eru í trésmíði.
    • áhöldum til mælinga og uppmerkinga.
    • öryggisreglum einstakra hand‐ og rafmagnshandverkfæra.
    • þvingum og vinnuaðferðum við samsetningar í trésmíði.
    • öryggisreglum fyrir meðferð og notkun einstakra límtegunda.
    • notkun lofthandverkfæra í trésmíði og öryggisbúnaði þeirra.
    • stillingum og fyrirbyggjandi viðhaldi lofthandverkfæra.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota áhöld til mælinga og uppmerkinga.
    • nota mismunandi tegundir verkfæra.
    • nota algengustu hand‐ og rafmagnshandverkfæri.
    • leggja á og brýna algengustu handverkfæri.
    • nota helstu trésamsetningar við einfalda trésmíði.
    • lesa merkingar og flokka efni með tilliti til útlits og styrks.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • aðlaga sig að mismunandi vinnuumhverfi.
    • velja smíðavið fyrir einstök verkefni og rökstyðja valið.
    • flokka timbur með hliðsjón af leiðbeiningum.
    • beita vinnuskipulagi í trésmíði og fylgja aðgerðalista við vinnu.
    • ganga úr skugga um gæði smíðishluta fyrir samsetningu.
    • nota þvingur markvisst til að fá smíðishlut réttan í límingu.
    • mæla og taka úr fyrir smíðisfestingum og setja endanlega upp.
    • velja rétt lofthandverkfæri með hliðsjón af verkefni.
    Símat.