Í áfanganum læra nemendur um smíði tréstiga innanhúss með áherslu á algengustu útfærslur þeirra, samsetningar, smíði og yfirborðsmeðferð. Nemendur læra að búa til skapalón í fullri stærð eftir teikningum og hvernig þau eru notuð til að smíða þrep, stigakjálka og stigahandrið með rimlum m.m. Nemendur fá þjálfun í að smíða tréstiga eða einstaka hluta þeirra í smækkaðri mynd og nota til þess hefðbundin áhöld og algengar trésmíðavélar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
umgengni og notkun trésmíðavéla og áhalda fyrir smíði tréstiga innanhúss.
vali efna til smíði tréstiga innanhúss.
öryggisþáttum og viðhaldi trésmíðavéla.
öryggisreglum og öryggisbúnaði varðandi smíði stiga og handriða.
límtré og notkun þess í þrep, uppstig og kjálka á tréstigum.
smíðisfestingum til notkunar við samsetningu tréstiga.
notkun prófíla úr málmi og plasti á tréstiga og handrið.
öryggisreglum og öryggisbúnaði áhalda og tækja.
yfirborðsmeðferð tréstiga og handriða innanhúss.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota vélar og handverkfæri til smíði tréstiga og handriða.
smíða og setja upp algengustu tegundir tréstiga.
lesa og vinna með teikningar frá hönnuðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja heppilegt smíðaefni með tilliti til útfærslu og notkunar.
velja og halda við áhöldum fyrir smíði tréstiga og handriða.
velja trésmíðavélar og rafmagnshandverkfæri til stigasmíði.
beita öryggisreglum og öryggisbúnaði varðandi smíði stiga og handriða og yfirborðsmeðferð þeirra.
velja slípi‐ og lökkunarkerfi fyrir mismunandi viðartegundir.
smíða snúinn tréstiga með eða án handriðs og setja upp.
búa til skapalón í fullri stærð eftir stigateikningum.
setja saman tréstiga í samræmi við kröfur um málsetningu og útlit.