Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1573568111.68

    Ingangur að tölvuleikjagerð og forritun
    GAME1TF05(TF)
    3
    tölvuleikjagerð
    Tölvuleikjagerð og forritun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    TF
    Í áfanganum læra nemendur að gera einfalda tölvuleiki frá grunni med forritun og með leikjavél. Nemendur kynnast verkefnastýringu fyrir tölvuleikjagerð ásamt aðferð til að skrá upplýsingar um vinnuferlið.
    UPPT1UT02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnhugtökum forritunar
    • notkun leikjavéla og forritunar til að skapa einfalda tölvuleiki
    • mismunandi leyfum fyrir forrit og hvernig þau geta haft áhrif á val verkfæra til leikjagerðar
    • sögu leikja og tölvuleikja
    • flokkun tölvuleikja
    • verkefnastýringu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hagnýta forritun til að gera einfalda tölvuleiki
    • hagnýta leikjavél til að gera einfalda tölvuleiki
    • leita að, prufa, meta og velja verkfæri til notkunar við gerð íhluta fyrir tölvuleiki út frá verði, leyfi og tæknilegum möguleikum
    • nota verkefnastýringarkerfi til að skipuleggja vinnuferlið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna sjálfstætt að lausn vandamáls med forritun
    • kynna vinnu sína á sjálfstæðan máta
    • taka þátt í hópvinnu við gerð tölvuleikja
    • skapa einfaldra tölvuleiki og kynna vinnu við gerð þeirra
    Leiðsagnarmat, skrifleg próf og verkefnaskil.