Í áfanganum er megináhersla á vélbúnað og stýrikerfi. Nemendur setja saman tölvu, setja upp stýrikerfi, uppfæra BIOS, rekla og stýrikerfi. Farið er í hlutverk og samskipti mismunandi íhluta tölvunnar, s.s. örgjörva og minni, samskipti við viðskiptavini og þjónustuborð og förgun á tölvubúnaði. Fjallað er um tengingu og uppsetningu á jaðartækjum. Tengdar eru saman tvær eða fleiri tölvur þannig að þær geti haft samskipti sín á milli. Nemendur vinna með ýmsar stillingar í Windows stýrikerfinu, búa til notendur og hópa auk þess sem notkun aðgangsstýringa í Windows er skoðuð og æfð. Nemendur fá kynningu og æfa notkun á skriftum í Windows.
KEST1VL05AU
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stillingum í BIOS.
samsetningu tölva, uppfærslum og tengingu jaðartækja.
samskiptareglum milli þjónustuborðs og viðskiptavina.
flokkun og förgun íhluta.
„cross over“ og „straight through“ netsnúrum.
mismunandi útfærslum á nettengingum.
skriftum í Windows
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja íhluti sem hæfa kröfum viðskiptavina og verkefna.
tengja jaðartæki og uppfæra búnað.
stilla BIOS.
tengja saman tölvur.
skrifa skriftur í Windows.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
framkvæma einfalda bilanaleit.
setja saman tölvu frá grunni.
uppfæra vél- og hugbúnað.
setja upp og uppfæra stýrikerfi.
fínstilla samhæfni vélbúnaðar og stýrikerfis.
setja upp einfalt staðarnet.
gert stillingar á Windows stýrikerfinu með skriftum.