Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1577817746.79

    Sálfræði
    SÁLF1SD03
    10
    sálfræði
    sálfræði daglegs lífs
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í áfanganum er sálfræðin kynnt sem fræðigrein og farið í valdar stefnur og kenningar. Nemendur fá innsýn í fjölbreytileika sálfræðinnar og kynnast helstu starfssviðum sálfræðinga. Fjallað verður almennt um geðheilbrigði út frá sálfræðilegum kenningum, hvað einkennir góða heilsu og algengustu geð- og persónuleikaraskanir og meðferðarúrræði við þeim. Nemendur kynnast jákvæðri sálfræði sem fræðigrein, helstu hugtökum og viðfangsefnum og hvernig þeir geta nýtt aðferðir hennar í daglegu lífi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • völdum stefnum og kenningum í sálfræði
    • hversu fjölbreytt fræðigreinin sálfræði er, helstu undirgreinum hennar og starfssviðum sálfræðinga
    • hvað felst í hugtakinu geðheilbrigði og hvaða leiðir eru til að bæta það
    • helstu geð- og persónuleikaröskunum, orsökum þeirra og meðferðum
    • helstu hugtökum og viðfangsefnum jákvæðrar sálfræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa í og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni sálfræðinnar
    • skoða sína eigin hegðun og hegðun annarra út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
    • beita þeim leiðum sem stuðla að andlegu heilbrigði og fjallað er um í áfanganum
    • beita upplýsingatækni við þekkingarleit
    • beita gagnrýninni hugsun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta með einföldum hætti yfirfært sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd
    • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
    • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
    • beita þekkingu sinni til að efla og verja eigin geðheilsu
    • þekkja eigin styrkleika og setja sér raunhæf markmið