Meginviðfangsefni áfangans eru verklegar æfingar. Líffræðin eða lífvísindi er fræðigrein sem fjallar um lífið í sem fjölbreyttustu mynd, allt frá hinum smæstu lífefnasameindum til flókinna vistkerfa.
Í þessum áfanga er lögð áhersla á fjölbreyttar verklegar æfingar og reynt að koma inn á sem flestar undirgreinar líffræðinnar og taka þannig þverskurð af líffræðinni í sem fjölbreyttastri mynd. Út frá hverri verklegri æfingu er tekið fyrir kennsluefni sem tengist efni æfingarinnar sem nemendur eru að vinna með hverju sinni. Niðurstöður eru síðan teknar saman í skýrslu. Markmið áfangans er að nemendur öðlist aukna færni, sjálfstæði og vandvirkni í verklegum vinnubrögðum á sem breiðustu sviði innan líffræðinnar og að þeir temji sér vönduð, vísindaleg vinnubrögð með gagnrýna hugsun að leiðarljósi. Þær verklegu æfingar sem nemendur framkvæma geta verið breytilegar milli ára en þó framkvæma allir nemendur frumuskoðun, sveppaæfingu, sýnatöku og ræktun baktería, skoðun og greiningu frumvera og kryfja lífveru auk fleiri æfinga sem nemendur velja í samráði við kennara.
NÁTT2GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vísindalegri aðferðafræði
mikilvægi vandaðra og nákvæmra vinnubragða við framkvæmd verklegra æfinga
hlutverki smásjár og víðsjár
mikilvægi gagnrýninnar hugsunar við túlkun rannsóknarniðurstaða
ólíkum frumugerðum lífvera
gerð og vaxtarskilyrðum baktería, sveppa og frumvera og mikilvægi þeirra í vistkerfum
helstu verklagsreglum sem beitt er við krufningu lífvera
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp vísindalega rannsókn byggða á vísindalegri aðferðafræði
fylgja verklagsreglum á ábyrgan og sjálfstæðan hátt
útbúa smásjársýni og lita
taka sýni og setja upp bakteríuræktun
nota smásjá og víðsjá
beita réttum verklagsreglum við krufningu lífvera
þekkja mun á helstu frumugerðum lífvera
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta sýnt sjálfstæði og beitt gagnrýnni hugsun
geta dregið ályktanir af rannsóknarverkefni með rökstuddum niðurstöðum
geta unnið með öðrum til að leysa flóknari viðfangsefni
geta unnið nákvæmar og vandaðar skýrslur með vísindalega aðferðafræði að leiðarljósi
greina á milli ólíkra frumugerða
greina og flokka helstu gerðir baktería, sveppa og frumvera
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.