Í áfanganum er farið í gildi fjármála fyrir einstaklinginn, fyrirtækið og samfélagið. Lögð verður áhersla á fjármálalæsi sem hagnýta fræðigrein sem nýtist öllum í námi og starfi. Í áfanganum er fjallað um ábyrgð á sviði fjármála, tekjur, útgjöld, sparnað, lánamál, peningaáhyggjur, eðli peninga, fjármálastofnanir og ýmislegt fleira. Fjármálalæsi felur í sér getu til að greina valkosti í fjármálum, fjalla um peninga án vandkvæða, gera áætlanir til framtíðar og bregðast skynsamlega við breyttum forsendum ákvarðana í fjármálum, þar með talið í efnahagsumhverfinu. Fjármálalæsi byggist á þekkingu, viðhorfum og hegðun og snýst um að geta tekið upplýstar, meðvitaðar ákvarðanir í fjármálum til lengri og skemmri tíma. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og að nemendur taki ábyrgð á því að skipuleggja vinnu sína og læri að nýta sér þau hjálpartæki sem í boði eru.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum fjármálum daglegs lífs
lestri launaseðla og annarra fjármálatengdra skjala
tilgangi skatta og annars frádráttar
rekstri heimilis og bifreiðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna gróflega útborgun launa eftir skatt
gera sér grein fyrir daglegum kostnaði, t.d. fæði og húsnæði
leita sér upplýsinga sem aðstoðar við nauðsynlega útreikninga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir mikilvægi peninga
skilja tilgang skatta og gjalda og hvernig þeir nýtast
skilja mikilvægi þess að tekjur séu hærri en gjöld
tileinka sér ábyrgð á eigin fjármálum og átta sig á að tekjur og gjöld verða að standast
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.