Viðfangsefni áfangans eru fimleikar og hann er nánast einungis verklegur. Í áfanganum er farið í grunntækniatriði í almennum fimleikum. Það er farið í grunnæfingar s.s. kollhnís, handstöðu, handahlaup, arabastökk, heljarstökk, afturábak heljarstökk, flikk flakk, kraftsökk og yfirslag. Unnið á loftdýnu, trampólíni, í rimlum, köðlum og mikið reynir á styrk og liðleika.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mismunandi æfingum og allri þeirri fjölbreytni sem íþróttagreinin hefur upp á að bjóða
Grunnreglum íþróttagreinarinnar
Grunntækniatriðum íþróttarinnar
Grunnþekkingu á hvað eigin líkami getur framkvæmt
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Framkvæma undirstöðuæfingar íþróttagreinarinnar
Framkvæma grunntækni í teygjuæfingum og að vinna með öðrum í þeim æfingum
Útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefnin
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta horft á fimleika og skilið íþróttina, s.s. hvernig er dæmt, hvaða tegund fimleika er verið að vinna með og hvaða áhöld þarf undir hverja grein innan fimleikanna
Geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina.