Í þessum áfanga er farið í grunnatriði dulritunar og talnafræði. Byrjað er á sögu dulkóðunar og klassískum dulkóðunaraðferðum og tólum úr talnafræði sem eru undirstaðan fyrir dulritun. Áhersla er á dulkóðunarverkefni sem hægt er að leysa handvirkt en einnig er farið í einföld forritunarverkefni ásamt hefðbundnum stærðfræðidæmum. Loks er kynnig á ritvinnsluforritinu LaTex en flestir stærðfræðingar og verkfræðingar nota það til að koma frá sér rituðum texta.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
● Tilgangi dulritunar og notkunardæmi hennar í sögulegu samhengi.
Tilgangi dulritunar og notkun í nútímasamfélagi
Grunnatriði talnafræðinnar, sérstaklega þeim sem snúa að dulritun
Einföldu forritunarmáli, sérstaklega þegar kemur að útfærslu reiknirita í talnafræði og dulritun
Algengustu reikniritum sem koma mikið við sögu í dulkóðun, s.s. reiknirit Evklíðs til að finna stærsta samnefnara
Nokkrum atriðum um notkun dulritunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota einfaldar dulkóðunaraðferðir til að dulkóða stuttan texta í höndunum
Lesa og nota einfalt forrit sem beitir öflugri dulkóðunaraðferðum til að dulkóða texta
Leysa talnafræðileg verkefni, bæði í höndunum og með aðstoð forrits
Nota algeng reiknirit sem koma mikið við sögu í dulkóðun, s.s. reiknirit Evklíðs til að finna stærsta samnefnara
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Útbúa einfaldar þrautir tengdar dulritun
Leysa einfaldar þrautir tengdar dulritun
Gera sér grein fyrir að margar dulritunaðferðir eru of auðbrjótanlegar til að vera nothæfar í nútímasamfélagi
Lesa og nýta einfalt forritunarmál í öðrum stærðfræðigreinum
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.