Byggt er á grunnskólahæfni nemenda. Stefnt er að aukinni færni nemandans í hlustun, tali, lestri og ritun. Áhersla er lögð á aukinn orðaforða, málfræði og skilning. Viðfangsefni eru m.a. tengd daglegu lífi, frítíma, ferðalögum og liðnum atburðum.
Áfanginn er ætlaður nemendum sem fengu einkunn C við lok grunnskóla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengum orðasamböndum og orðtökum
grunnatriðum enskrar málfræði og málnotkunar
menningu landa þar sem enska er notuð sem móðurmál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita málfari við hæfi og skilja algengustu orðasambönd sem notuð eru í töluðu og rituðu máli
lesa og skilja einfalda texta á ensku
fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
nýta sér upplýsingatækni og önnur hjálpargögn í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
takast á við margvíslegar og óvæntar aðstæður í almennum samskiptum
miðla efni sem hann hefur kynnt sér, bæði í rituðu og töluðu máli