Í áfanganum er megináhersla lögð á að nemendur fái tilfinningu fyrir áhrifum hreyfingar á líðan sína, andlega og líkamlega. Farið er í gegnum æfingar sem þjálfa upp styrk, jafnvægi, stöðugleika og liðleika. Í jóga eru hreyfingar gerðar í takt við eigið öndunarflæði. Áhersla er lögð á að hver og einn geti tekið þátt í æfingunum á sínum forsendum. Í lok hvers tíma er farið í gegnum æfingar sem róa hugann og endað í slökun. Mikið er lagt upp úr líkamsvitund, einbeitingu og slökun hugans.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi flæðis öndunar í hreyfingum og stöðum
Hvaða álagsstig hentar best til bætingar á líkamsástandi
Æskilegum aðferðum til þjálfunar líkamans
Mikilvægi slökunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Einbeita sér að æfingum tímans og útiloka önnur verkefni sem bíða dagsins
Fylgja eftir einföldum jógaæfingum í tíma út frá eigin getu
Tengja saman öndun og hreyfingu í eðlilegt flæði
Stunda líkams- og heilsurækt
Stuðla að bættri líkamsbeitingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Draga úr streitu við krefjandi aðstæður með öndunartækni
Tileinka sér rétta æfingatækni og líkamsbeitingu við jógaþjálfun
Stunda reglulega, fjölbreytta hreyfingu eftir áhuga
Stunda líkamsrækt í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni