Nemendur vinna ákveðin verkefni til að
æfa ákveðna færni og þar sem þeir þurfa að tjá sig á myndrænan hátt. Leitast er við
að gefa nemendum kost á að nota fjölbreyttar aðferðir við myndvinnslu og þjálfist í að tjá sig á ólíkan máta. Sérstök áhersla er á að nemendur eflist í teikningu, litameðferð og í að byggja upp þrívíðar myndir. Áherslur eru einstaklingsbundnar,
háðar myndrænni færni og formrænum skilningi hvers einstaks nemanda. Þá skoða
nemendur listaverk eða aðra þætti sjónræns umhverfis með kennara og ræða saman
um merkingu viðfangsefnisins bæði sögulega, táknrænt og frá sjónarhóli einstakra
nemenda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Grunnlögmálum um ljós og skugga í myndlist
Litablöndun með akríllitum
Fjarvíddarteikningu með einum hvarfpunkti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Blanda liti úr grunnlitum
Teikna fjarvídd með einum hvarfpunkti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Getað tjáð sig myndrænt; teiknað og málað fjarvíðar myndir með skuggum og verið stoltur af og staðið með unnu verki
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.