Nemendur læra að syngja tví-, þrí- og fjórraddað og syngja saman í kór án hljóðfæraleiks (acapella). Þeir þjálfast í hlustun, mismunandi röddum, tónfræði, tónheyrn, röddun, samsöng, framkomu og takti.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Röddun
Vinnu við útsetningu laga
Tónheyrn
Taktvinnu
Framkomu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að flytja lag og texta
Að útsetja lag
Hljóðupptökum
Að standa á sviði í hópi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Útsetja lögin
Prófa að hljóðrita lög og útbúa til spilunar
Æfa lögin og flytja
Taka þátt í viðburðum
Vinna með öðrum og finna styrkleika hvers annars
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.