Áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er blak fyrir krakka og unglinga upp að 18 ára aldri. Í
áfanganum verður farið í grunnatriði greinarinnar og nemendur þjálfa ýmis grunntækniatriði, s.s. fingurslag, fleyg, uppgjöf, smass ásamt leikfræði (staðsetningar o.fl.) og reglum greinarinnar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Nýtingu leikja og æfinga fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir
Mismunandi hlutverkum leikmanna í blaki
Grunnreglum íþróttarinnar, s.s. tvíslagi, moki, neti, yfirstigi og fjórum
Grunntækniatriðum íþróttarinnar, s.s. uppgjöf, fleyg, fingurslagi og smassi
Grunnleikfræði íþróttarinnar, s.s. staðsetningum og leikstöðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Setja upp skipulagðan tímaseðil út frá getu iðkenda og markmiðum tímans
Meta reglur íþróttarinnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
Þekkja hlutverk leikmanna og geta spilað mismunandi leikstöður
Útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefnin
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta horft á blak og skilið leikinn, s.s. hvað er verið að dæma, af hverju staðsetning leikmanna er eins og hún er o.s.frv.
Bera ábyrgð á því að skipuleggja og framkvæma kennslu hjá samnemendum þar sem grunnatriðin eru kennd
Meta eigin leik og annarra og komið með hugmyndir að því hvað má bæta og þá hvernig
Geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.