Í áfanganum lesa nemendur enskan bókmenntatexta sér til ánægju og yndisauka. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mismunandi tegundum bókmennta
Enskum bókmenntum og samfélaginu eins og það birtist í þeim
Orðaforða í ræðu og riti sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta
Skilja meginefni óstytts bókmenntatexta
Vinna með nýjan orðaforða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
Tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um bókmenntir
Nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.