Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1581692809.3

    Landafræði
    LAND2LF05
    4
    landafræði
    Landafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur þekki heiminn, heimsálfurnar og lönd innan þeirra. Nemendur noti öpp og forrit til að kynnast löndum og stöðum og velji sér staði erlendis til að kynna sér betur í lokaverkefni. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og upplýsingaleit.
    INNF1IF05/INNÁ1IN05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Heimsálfunum og löndum heims
    • Mismunandi einkennum heimshluta og landsvæða
    • Menningu og menningarmun milli landa og svæða
    • Mismunandi náttúrufari i heiminum
    • Algengustu tungumálum heimsins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Ræða og kynna ólíkar þjóðir og lönd af umburðarlyndi og virðingu
    • Afla fjölbreyttra upplýsinga og vinna með þær
    • Nota þau forrit og vefi sem í boði eru við vinnslu verkefna
    • Verða sjálfbjarga í að leita upplýsinga og koma þeim til skila í verkefnavinnu
    • Vinna sjálfstætt og með öðrum til að koma þekkingu sinni á framfæri
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Staðsetja heimsálfur og lönd, t.d. á landakorti
    • Þekkja helstu lönd og einkenni þeirra
    • Bera saman menningu og siði svæða og landa heimsins
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.