Í þessum áfanga er lögð áhersla á að draga fram hlutverk kvenna í mannkynssögunni og leita upplýsinga um hvað þær hafa gert til að móta hana. Fjallað er um mismunandi tímabil í sögunni, bæði á Íslandi og alheimsvísu. Skoðuð eru ólík svið sögunnar, til dæmis vísindi og listir, og hvernig konur hafa átt sinn þátt í þeim, bæði sem listamenn og persónur í listaverkum. Einnig er framlag kvenna til jafnréttisbaráttu í víðu samhengi skoðað, sem og konur sem áhrifavaldar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hlutverki kvenna í mannkynssögunni frá upphafi
Kvenkyns áhrifavöldum á mismunandi sviðum
Hvað konur hafa lagt af mörkum við rannsóknir
Framlagi kvenna til lista, vísinda, stjórnmála og annarra þátta þjóðlífs
Konum sem skáldsagnapersónum
Baráttunni um jafnrétti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skoða söguna á gagnrýninn hátt m.t.t. kynja
Meta hvaða áhrif konur hafa haft á söguna
Miðla þeirri þekkingu sem aflað er í áfanganum á skýran hátt
Leita upplýsinga um efnið á fjölbreyttan og gagnrýninn hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Gera sér grein fyrir áhrifum kvenna á mannkynssöguna
Rökstyðja hvaða áhrif konur hafa haft á sögu, listir ofl.
Meta og útskýra atburði á gangrýninn hátt
Geta leitt líkum að hver staða kvenna nútímans verður í sögu framtíðarinnar
Taka þátt í umræðu um þátt kvenna í sögunni
Miðla þeirri þekkingu sem aflað er með fjölbreyttum aðferðum og af víðsýni
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.