Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í tvo megin efnisþætti. Í fyrri efnisþætti er fjallað um fallmyndun, en í þeim seinni flatarteikningu og yfirborðsútflatninga. Gert er ráð fyrir að nemendur öðlist færni í lestri og gerð vinnuteikninga, gerð flatarmynda og útflatninga. Nemendur skulu öðlast færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, lestri teikninga og fá grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og útflatninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir fagbundið nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga.
Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
upplýsingamiðlun og tæknilegum teikningum.
hornréttum fallmyndum ásamt sneiðmyndum af einföldum hlutum.
málsetningu og hlutföllum teikning.
þrívíðum teikningum og sönnum stærðum skurðflata.
reglum, stöðlum og venjum sem gilda um vinnuteikningar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota teikni- og mæliáhöld.
gera vinnuteikningar með teikniáhöldum af einföldum hlutum með hornréttum fallmyndum og sneiðmyndum.
hugsa af nákvæmni um og vinna myndrænt með viðfangsefni starfsgreina, s.s. hönnunar og iðngreina.
gera útflatningsmyndir og finna raunstærðir skurðarflata á sívalningum, keilum og fleiri þrívíðum formum.
skipuleggja, árita og ganga frá einföldum tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa teikningar.
vinna einfaldar tæknilegar vinnuteikningar og einfaldar þrívíðar teikningar.
finna sannar stærðir útflatninga og teikna þrívíð form og finna sannar stærðir skurðarflata.
undirbúa sig fyrir fagbundið teikninám og annað fagnám starfsgreina, s.s. hönnunar- og iðngreina.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.