Markmið þessa áfanga er að breikka þekkingargrunn nemenda og auka færni þeirra á sviði málmsuðu, einkum að því er varðar beitingu hlífðargass við suðu á mismunandi tegundum málma. Nemendur skulu öðlast þjálfun í suðu með hlífðargasi (argon, blandgas) á járni og öðrum málmum (ryðfríu stáli og áli).
Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
MLSU1VA03AV
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
suðu með hlífðargasi.
argon- og blandgasi á stáli, ryðfríu stáli og áli með TIG, MIG og MAG suðutækjum.
MIG-MAG suðu á beinum fleti, lóðrétt-stígandi og lóðrétt-fallandi kverksuðu og uppundirsuðu.
TIG-suðu í kverk á tveimur ryðfríum plötum.
TIG-suðu á ryðfríum prófíl.
TIG-suðu á svörtum rörum.
skurði á ýmsum málmum með plasmaskurðarvélum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rafsjóða í ýmsum suðustellingum með MIG-MAG rafsuðutækjum.
rafsjóða ál, svart og ryðfrítt stál með TIG-suðu.
skera málma með plasmavélum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta við hvaða aðstæður henti að beita MIG-MAG eða TIG-suðu.
meta hvaða forsendur þurfi að vera til staðar til þess að MIG-MAG eða TIG suður henti við samtengingar.
meta hvaða tæki og búnaður þarf að vera til staðar við plasmaskurð og hvernær henti að beita plasmaskurði.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.