Nemendur öðlast þekkingu á grundvallarhugtökum rafmagnsfræðinnar og verða færir um að gera útreikninga samkvæmt Ohms-, Kirchhoffs- og öðrum grundvallarlögmálum. Nemendur öðlast þjálfun í tengingum straumrása, í notkun mælitækja, læra að umgangast rafmagn og gera sér grein fyrir þeim hættum sem tengjast raforku og rafbúnaði. Nemendur skulu geta útskýrt grundvallarvinnumáta rafvéla og öðlast þekkingu á uppbyggingu þeirra. Í áfanganum eru gerðar verklegar æfingar til að auka skilning nemenda á námsefni áfangans.
Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
STÆR2BR05AT
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum rafmagnsfræðinnar og lögmálum Ohms, Kirchhoffs o.fl.
rafeindakenningunni.
mismunandi leiðni mismunandi efna í rafbúnaði.
viðnámi og spennutapi í rafleiðurum.
uppbyggingu, virkni, notkun og umhirðu rafgeyma.
skautspennu, innri spennu, innra viðnámi og skammhlaupsstraumi spennugjafa.
ræsibúnaði og tengingum einfaldra rafmótora fyrir jafnstraum.
undirstöðuatriðum riðstraumsrása og í raflögnum húsa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta gerðir strengja og val á rafstrengjum m.t.t. straumflutningagetu og umhverfisaðstæðna.
nota teikningartákn íhluta rafbúnaðar.
teikna og útskýra einfaldar jafn- og riðstraumsrásir.
meta hættur af völdum rafmagns.
greina mikilvæg öryggisatriði samkvæmt öryggisstöðlum IEC og VDE.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
reikna samkvæmt lögmálum Ohms, Kirchhoffs og Watts.
hirða um rafgeyma á viðeigandi hátt.
teikna og útskýra straumrásir.
beita mælitækjum í rafrásum til að greina bilanir og straumnotkun.
vinna við einfalda rafmótora fyrir jafnstraum.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.