Í áfanganum er lögð áhersla á rafmagnsfræði riðstraums. Nemendur öðlast frekari þekkingu á segulmagni og rafsegulmagni og verða færir um að útskýra grundvallarvinnumáta rafvéla út frá því. Nemendur öðlast víðtæka þekkingu á rafsviði, spani og segulsviði. Einnig öðlast þeir þekkingu á undirstöðuatriðum riðstraumsrása og riðstraumsvéla og öðlast grunnþjálfun í lestri rafteikninga svo sem kassateikninga, einlínuteikninga og straumrásarteikninga.
Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
RAMV1VA04AV
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einangrunarmælingum í rafkerfi.
segulmagni, rafsegulmagni og virkni þessara þátta í rafvélum.
undirstöðuatriðum riðstraums og riðstraumsrása.
afli og fasviki í einfasa og þriggja fasa riðstraumsrásum.
uppbyggingu og hlutverki segulrofa og grunntengingum hans.
uppbyggingu rafkerfis í smábátum og einstökum hlutum þess.
rafkerfum dísilvéla.
áhrifum fasviks á rafkerfi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útskýra einangrunarmælingar í rafkerfi.
útskýra segulmagn í rafvélum.
útskýra undirstöðuatriði í straumrásum.
finna fasvik í einfasa og þriggja fasa riðstraumsrásum með hjálp vektoramynda.
útskýra uppbyggingu rafkerfis í smábátum og einstaka hluta þess.
greina á milli seguslviðs, spans og rafsviðs.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sjá um rafbúnað í minni skipum.
þjónusta rafvélar minni skipa.
bregðast rétt við algengum bilunum í rafkerfum skips.
lesa rafmagnsteikningar og nýta í bilanaleit.
vinna kerfisbundið að því að finna bilanir í rafkerfum skipa og díselvéla.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.