Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1582625129.56

    Rökrásir 1 - grunnáfangi
    RÖKR3VB04(AV)
    7
    Rökrásir
    Rökrásir - VB
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    AV
    Nemendur öðlast undirstöðuþekkingu í gerð rökrása og fá þjálfun í hönnun og greiningu á einföldum rökrásum, tengingum og forritun þeirra. Þeir þjálfast í að setja saman og tengja rökrásahlið fyrir ákveðna virkni, skrifa formúlu samsettrar rásar og prófa virkni hennar. Nemendur öðlast þekkingu og skilning á því hvernig hægt er að byggja upp rökrásavirkni í iðntölvum og forritanlegum rökrásum. Þeir kynnast hugtökunum forrit (program), stigarit (ladder) og rim (network) og fá þjálfun í að setja upp einfalda stýringu í tölvunni og þjálfun í að tengja búnað við inn- og útganga. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
    RAMV2VA04CV
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum stafrænnar tækni.
    • grunnrökrásahliðum, OR, AND og NOT.
    • rökrásahliðum NOR og NAND.
    • hvernig hægt er að nota NOR og/eða NAND hlið til að fá fram grunnvirknina, OR, AND og NOT.
    • mismunandi talnakerfum, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal.
    • samrásum (IC-circuit) með rökrásahliðum (C-MOS eða TTL).
    • grunnskipunum í C og C++ forritun.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa virkni einfaldra rökrása.
    • hanna rökrás út frá skilyrtri virkni.
    • útskýra grunnrökrásahlið og rökrásahlið með rofahliðstæðunni og setja upp sannleikatöflu þeirra og bólskar (Boolean) formúlur.
    • bera saman mismunandi talnakerfi, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal við tugakerfið.
    • tengja og prófa samrásir með rökrásahliðum.
    • forrita einfaldar örgjörvarásir.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa formúlur í rökrásavirkni og vinna í hermisforritum.
    • nota sannleikstöflur og bólskar jöfnur til að skilgreina virkni rökrása.
    • setja upp einfaldar stýringar í iðntölvum og örgjörvarásum.
    • tengja búnað við inn- og útganga iðntölvu.
    • teikna stigarit eftir: a) formúlu, b) segulliðarás c) textalýsingu.
    • forrita örtölvukerfi sem stýra einföldum ferlum.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.