Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1582628512.45

    Málmsmíðar 1 - handavinna, grunnur
    SMÍÐ1VA04(AV)
    3
    Smíðar
    Málmsmíðar - VA
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    AV
    Nemendur skulu öðlast þjálfun í notkun og meðferð verkfæra, mælitækja og verkstæðisbúnaðar, fá tilfinningu fyrir nákvæmni mælitækja, notkunarsviði þeirra og takmörkunum. Nemendur fá þjálfun í smíði eftir teikningum og þekkingu til að velja smíðamálma og meðhöndla þá á réttan hátt við vinnu sína. Einnig þjálfast þeir í að beita helstu verkfærum við málmsmíðar og vinnuaðferðum, s.s. að saga, sverfa, bora, snitta, nota snitttöflur, slípa, o.s.frv. Kennslan skiptist í bóklegt og verklegt nám. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • almennum skilgreiningum á járni, stáli, járnsteypu, ryðfríu stáli, áli og öðrum málmum.
    • notkunarsviði, umhirðu og viðhaldi handverkfæra og tækja sem notuð eru til viðhalds og viðgerða á vélbúnaði.
    • helstu mælitækjum sem notuð er í málmiðnaði til beinna og óbeinna mælinga.
    • uppbyggingu og notkun spóntökuvéla.
    • helstu aðferðum og verkfærum við málsmíðar.
    • vinnsluhæfni smíðastáls, áls og ryðfrís stáls.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með handverkfærum og vélum.
    • vinna eftir einföldum teikningum, smíði sem stenst öll mál.
    • velja efni sem hentar smíði hverju sinni.
    • beita mælitækjum, svo sem rennimáli, kastmæli og míkrómetra.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja öryggisbúnað sem hentar verkefnum og aðstæðum.
    • lesa eiginleika málmtegunda úr efnisstöðlum.
    • velja málmtegundir eftir stöðlum og ákveðið hvaða efni hentar best fyrir mismunandi aðstæður og notkun.
    • segja til um herslumöguleika og herslueiginleika málma.
    • velja samsetningaraðferðir (lóðun/suða, boltun, líming).
    • velja tæki og búnað sem hentar mismunandi smíðaefnum.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.