Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1582628954.2

    Matur og menning
    MOME2ME05
    2
    Matur og menning
    Matar- og menningarnám
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn felst í matar- og menningarferð til Evrópu. Í undirbúningi ferðarinnar afla nemendur sér fróðleiks um matar- og innkaupahefðir, menningu, sögu og landafræði staðarins sem farið verður til. Nemendur búa til kynningar og fróðleiksmola fyrir vefsíðu sem búin er til fyrir áfangann. Áhersla er lögð á að nemendur fræðist um matar- og menningarsögu landsins. Í ferðinni er unnið með ríkjandi matarhefðir og innkaupavenjur, eldað úr afurðum úr héraði sem og með íbúum, farið í skoðurnarferðir á markaði og í fyrirtæki. Nemendur heimsækja sögulega staði og fræðast um sögu og menningu landsins.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Matarhefðum á svæðinu sem heimsótt er
    • Hvernig svæðisbundir réttir eru eldaðir og hvaða hráefni eru notuð
    • Matarinnkaupum í landinu sem heimsótt er
    • Matar- og menningarsögu svæðisins sem heimsótt er
    • Að lesa sér til um og taka þátt í að elda rétti af svæðinu
    • Grunnþáttum mismunandi hefða og matarmenningar
    • Uppruna hráefnis sem notað er
    • Að þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
    • Eigin vinnuframlagi og annarra
    • Hvernig á að skipuleggja fjáraflanir og framkvæma þær
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Lesa sér til um matar- og menningarsögu framandi lands á erlendu máli
    • Skoða ólíka matarmenningu og ræða
    • Taka þátt í samræðum um mismunandi matarmenningu, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra
    • Búa til fróðleiksmola sem birtar verða á heimasíðu áfangans
    • Halda dagbók meðan á ferðinni stendur og birta á vefnum
    • Lesa uppskriftir, fara eftir þeim og fjalla um megininntak þeirra
    • Efla skilning sinn á menningu og matargerð annars lands
    • Afla sér upplýsinga um matarinnnkaup
    • Upplifa, skynja og smakka það sem hann tekur þátt í að framreiða
    • Skoða hráefni sem til er í umhverfinu og elda það á nýstárlegan hátt
    • Geta unnið saman í teymi og skipt með sér verkum
    • Geta sett fram hugmyndir sínar um framandi rétti og brugðist við viðmælendum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tjá skoðanir sínar og tilfinningar um mat og framandi matarmenningu
    • Vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk matar
    • Sýna nokkurt sjálfstæði við að framreiða mat undir leiðsögn kennara
    • Tjá sig um eigin upplifun við framreiðslu matar við aðra viðmælendur með almennri ígrundun og samanburði
    • Halda úti dagbók um ferðina með íhugun um mismunandi matarhefðir og menningu svæðisins
    • Leysa úr viðfangsefnum í samstarfi við aðra
    • Þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
    • Sýna umburðarlyndi og virðingu gagnvart öðrum menningarheimum
    • Meta eigið vinnuframlag
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.