Í áfanganum öðlast nemendur grunnþekkingu á loft-, og vökvastýrðum kerfum, meðhöndlun loftsins (raka, síun, hitastigi) og uppbyggingu vökva, helstu þáttum þeirra, hlutverki og notkunarsviði. Þeir þjálfast í stillingu þrýstings, notkun og stillingu tímaliða og hraða. Fjallað er um helstu atriði í uppbyggingu þrepastýrikerfa og raktar teikningar af stýrikerfum fyrir brunavélar. Nemendur fá undirstöðuþekkingu og skilning á hlutverki og notkun stýritækninnar, þannig að þeir verði færir um að þjónusta loft- og vökvastýrð kerfi, setja upp kerfi eftir teikningum og framkvæma einfaldar viðgerðir. Gerðar eru verklegar æfingar í uppbyggingu og notkun einfaldra loft- og vökvastýrikerfa.
Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
VÉLS1VA04AV
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
táknmyndum sem notaðar eru í teikningum samkvæmt ISO-staðli.
samhengi flatar, þrýstings og krafts.
loftþjöppum og vökvadælum, tjökkum, lokum og öðrum búnaði tengdum loft- og vökvakerfum.
öryggisþáttum við meðhöndlun á lofti og vökva undir þrýstingi.
hraðastillingum strokka og notkun tímaliða með stillanlegum rof- og tengitíma.
áhvílandi stýrimerkjum.
síum og hreinsibúnaði og helstu aðferðum við hreinsun á lögnum.
helstu tegundum lagna, rörum, slöngum, festingum og tengjum.
vökvum sem notaðir eru á vökvakerfi og eðliseiginleikum þeirra (seigju, seigjutölu) og umhverfisáhrifum vökva, förgun og endurvinnslu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp og annast tengingar einfaldra stýrikerfa.
útskýra virkni einfaldra stýrikerfa út frá teikningum.
útskýra tengimyndir, starfsrit og stöðurit.
lesa kerfisteikningar og nota handbækur.
meta hvort uppgefnar stærðir á lögnum séu réttar.
meta stærð vökvageymis og lagna að honum og frá.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stjórna loft- og þrýstivökvakerfum á öruggan hátt.
lofttæma lokað vökvakerfi.
finna og lagfæra bilanir í loft- og þrýstivökvakerfum.
gera tengimyndir af hálf- og alsjálfvirkum raðferlum strokka.
meta orkutap í kerfum.
gera starfsrit samkvæmt tengimyndum.
nota handbækur.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.