Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1582630237.06

    Vélfræði 2
    VÉLF2VB04(BV)
    5
    Vélfræði
    Vélfræði - VB
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    BV
    Fræðileg umfjöllun um orku og orkunýtingu véla. Nemendur kynnast því hvernig orkan í eldsneytinu breytist m.a. í hreyfiorku og varmaorku og hvernig hún nýtist til að knýja skipið áfram.Þeir læra um grunnþætti gufukatla og eimframleiðslu og þjálfast í að útleiða formúlur sem koma fyrir í námsefninu. Þeir fá ennfremur þjálfun í að útskýra gildi breyta í formúlum og þjálfast í að beita þeim á viðeigandi hátt við lausn verkefna. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
    VÉLF1VA04AV VÉLS2VA04BV EÐLI2GR05BT
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Sankey línuritinu, hlutverki þess og notkun.
    • umbreytingu á orku við notkun brunavéla og varmajöfnuði.
    • nýtingu orku í brunavélum og nýtingu orku við að knýja skip áfram.
    • sveigju skipsskrúfu, skrikun hennar, skrúfulínuriti, afkastalínuriti.
    • neðra og efra varmagildi olíu og aðferðum við mælingu varmagildis.
    • fullkomnum bruna og orsökum ófullkomins bruna.
    • eldsneytisnotkun bulluvéla og orkudreifingu.
    • fræðilegri loftþörf, loftaukatölu og raunverulegri loftþörf brunavéla og katla.
    • notkun eims við aflfærslu, notkun á eimtöflum, myndunarvarma og nýtni katla.
    • mismun á vatnsrörakatli og reykrörakatli.
    • aflþörf dælukerfa (dælna).
    • kennilínu miðflóttaaflsdælu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera grein fyrir fjölbreyttum vélfræðilegum viðfangsefnum með notkun stærðfræði.
    • nota mismunandi vélfræðilegar mælieiningar við útreikninga.
    • reikna út aflþörf, orkunýtingu og varmajöfnuð véla.
    • gera grein fyrir notkun eims við aflyfirfærslu.
    • útskýra hugtök eins og myndunarvarma og nýtni katla.
    • nota eimtöflur og varmaflæðilínurit.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útleiða formúlur sem fyrir koma í námsefninu, útskýra gildi breytanna í formúlunni og beita þeim við lausn verkefna.
    • gera tillögur varðandi val á vélum, kötlum og ýmsum vélbúnaði skipa.
    • skýra neðra og efra varmagildi olíu og aðferðir við mælingu varmagildis.
    • leggja mat á gögn varðandi bruna eldsneytis, svo sem fullkominn bruna og ófullkominn bruna.
    • skýra eldsneytisnotkun bulluvéla og orkudreifingu.
    • nýta kennilínur og aflþörf dælna við val á búnaði.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.