Í áfanganum öðlast nemendur þekkingu á uppbyggingu og virkni mismunandi vélagerða þar sem áhersla er lögð á uppbyggingu, eiginleika og notkun bulluvéla. Einnig er farið yfir íhluti og einingar sem brunavél er gerð úr og hlutverk þeirra. Þá er fjallað um véla- og lagnakerfi sem þjóna brunavélum. Nemendur þjálfast í notkun véla og vélakerfa, bæði í verklegri þjálfun og í vélhermi. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að þjóna og stjórna vélbúnaði í minni skipum. Farið er yfir öryggismál, umgengni um vélar, ásamt hættum sem stafa af vélum og vélbúnaði.
Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnuhring tví- og fjórgengisvéla.
flokkun aflvéla eftir gerð, uppbyggingu og eldsneyti.
grundvallarhugmyndum að baki bulluvélinni, byggingu hennar og helstu íhlutum.
mismunandi uppbyggingu, notkun og eiginleikum hraðgengra og hæggengra bulluvéla.
mismunandi aðstreymi eldsneytis og lofts í dísilvél.
þeim kerfum sem þjóna vélum skipa, hlutverki þeirra og uppbyggingu í minni skipum.
kæliþörf brunavéla.
olíukerfi skipa og einstökum þáttum, frá daghylki að eldsneytisloka.
uppbyggingu á eldsneytisdælum og vinnumáta þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nafngreina helstu íhluti vélar og lýsa hlutverki þeirra.
lesa úr vélateikningum.
nota viðeigandi handverkfæri á réttan hátt.
ganga um vélar með tilliti til hreinlætis og öryggis.
búa til gátlista og undirbúa tvígengis- og fjórgengisskipsvélar fyrir gangsetningu og gangsetja þær.
ganga frá vél og vélarúmi eftir stöðvun og gera vélarúm frostklárt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
teikna upp vinnuhring tvígengis- og fjórgengisvéla og lýsa ferlinu.
rekja og teikna upp helstu vélakerfi.
stunda vinnu í vélarúmi skipa m.t.t. umgengni og öryggismála.
undirbúa dísilvél fyrir ræsingu og ræsa hana.
greina kerfisbundið bilanir í vél skips og bregðast við þeim á viðeigandi hátt.
lýsa virkni vélkerfa og samspili þeirra í keyrslu véla.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.