Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1582635444.98

    Vélstjórn 4
    VÉLS3VB04(DV)
    10
    Vélstjórn
    Vélstjórn - VB
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    DV
    Nemendur þjálfast í keyrslu vélarúms og vélbúnaðar í fullbúnum vélarúmshermi (full-mission). Með vélhermum kynnast nemendur daglegum rekstri vélarúms, frá köldu skipi til fullrar aflnotkunar. Viðbrögð við bilunum eru þjálfuð. Nemendur ræsa allan búnað vélarúmsins og reka það með hjálp viðvörunarkerfa hermisins í tilgreindan tima. Þeir bregðast við gangtruflunum, greina bilanir og koma búnaðinum í rétt horf. Nemendur öðlast hagnýta verklega þjálfun við stjórn á m.a. brunavélum, eimkötlum, eimtúrbínu, ásrafali, kælivélum, inert-gas kerfi, rafmagnsframleiðslu og rafkerfum, eldvarnabúnaði, ferskvatnseimi, smurolíu- og svartolíuskilvindum, ballestkerfi, austurkerfum og sorpbrennslubúnaði. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni.
    STIL3VB05AV VÉLS2VB04CV
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stjórntækjum vélarúmshermis.
    • daglegum rekstri vélarúms og hjálparbúðar.
    • virkni og uppbyggingu véla og vélbúnaðar, svo sem stýrisvéla, sjó- og ferkvatnsdælna, ferskvatnseimis og rafmagnsframleiðslu.
    • hvernig véladagbók er færð og notuð.
    • hvernig skipt er yfir á brúarstjórn og samskiptum milli brúar og vélarúms á að vera háttað.
    • snarvendingu aðalvélar.
    • alþjóðareglum sem gilda um störf vélstjóra og á vaktreglum STCW.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ræsa og stöðva einstök tæki vélarúmsins og stoðkerfa þess í vélarúmshermi á þann hátt að tækjum og búnaði verði ekki misboðið.
    • forgangsraða vinnu í vélarúmi á eðlilegan hátt.
    • tímasetja verk miðað við aðstæður.
    • afla upplýsinga um ástand vélbúnaðar og stoðkerfa.
    • vinna með öðrum stjórnendum að viðbrögðum og hættum sem upp geta komið varðandi búnað og öryggi skips.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • standa vaktir í vélarúmi og bregðast við bilunum og áreiti varðandi búnað.
    • taka ákvarðanir um stjórntök eða viðbrögð við óeðlilegu ástandi vélbúnaðar eða stoðkerfa og gera viðeigandi ráðstafanir.
    • nota kerfismyndir og handbækur sem hjálparbúnað við bilanagreiningu og viðbrögð við bilunum.
    • vinna sjálfstætt og taka frumkvæði sem vélstjóri.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.