Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1582635670.42

    Véltækni 1
    VÉLT3VB04(AV)
    5
    Véltækni
    Véltækni - VB
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    AV
    Megináhersla er lögð á nemendur öðlist færni og þekkingu á vélbúnaði með verkefnavinnu og greiningu mældra niðurstaðna. Sérstök áhersla er á varmafræði, varmajöfnuð og fræðilegar rannsóknir á aflfærslu til framdriftar skipa. Nemendur þjálfast í rekstri vélkerfa með því að gera varmafræðilegar athuganir og vinna úr þeim. Einnig er unnið að rannsóknum á varmaskiptum. Nemendur eiga að nýta sér námsefni undanfara og áunna fagþekkingu til að vinna verklegar æfingar og tilraunir sem hafa það hlutverk að auka skilning á einstökum þáttum fræðigreinarinnar. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni.
    VÉLF2VB04BV VÉLS3VB04DV
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • nýtni og afldreifingu miðflóttakraftsdælu.
    • dælukennilínum, mótstöðukennilínum og stjórnun rúmtaksstreymis fyrir miðflóttaaflsdælu.
    • rannsóknum á varmafræðilegum eiginleikum varmaskiptis.
    • varmajöfnuði dísilvéla (unnið í hermi).
    • álagslínuriti aðalvélar skips.
    • skrúfulínuriti (unnið í hermi).
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota díagrammrannsóknir til að greina bilanir í dísilvélum (unnið í hermi).
    • gera varmajöfnuð á dísilvél og leggja mat á niðurstöður.
    • lesa úr niðurstöðum varmajöfnuðar og varmaskipta vélbúnaðar.
    • setja niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi.
    • afla upplýsinga um ástand lofttemprunarkerfa og vinna úr þeim.
    • ræsa gufutúrbínu (í hermi) og fylgjast með henni í rekstri.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga á vélbúnaði gefa tilefni til.
    • setja fram helstu atriði æfingar og niðurstöður í skýrslu þar sem fram koma helstu mæliniðurstöður, útreikningar og línurit.
    • draga ályktanir af niðurstöðum rannsóknaræfinga og gera tillögur að úrbótum.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.