Megináhersla er lögð á að byggja upp jákvætt viðhorf til fagsins og eigin getu nemendanna. Nemendur eru hvattir til að nýta sér styrkleika sína og bera sem mesta ábyrgð á námi sínu. Unnið er með alla þætti málsins jöfnum höndum (lestur, hlustun tal og ritun) en megináhersla er á að byggja upp orðaforða.
Áfanginn er skylda fyrir nemendur sem ekki stóðust viðmið grunnskóla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skyldleika íslensku og dönsku og gegnsæi tungumálsins
aðferðum til þess að auka orðaforða sinn á markvissan hátt
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
grundvallarþáttum málkerfisins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota rafrænar orðabækur og önnur hjálpargögn
nýta sér gegnsæi dönskunnar gegnum íslensku og ensku
giska á líklega merkingu orða út frá samhengi
auka við orðaforða sinn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa sér til gagns og skilja talað mál af hæfilegu þyngdarstigi
tjá sig um kunnugleg málefni á skiljanlegri dönsku, bæði munnlega og skriflega
takast á við margvíslegar aðstæður í almennum samskiptum þar sem danska er notuð