Áfanginn er hluti af InTeMIS verkefninu og er styrkt af Erasmus. Markmið verkefnisins eru að kynna vendikennslu með áherslu á enskukennslu, og að þjálfa þátttakendur í upplýsingalæsi og notkun upplýsingatækni. Nemendur fara ásamt kennara til Spánar og taka þátt í námskeiði/málstofu um vendikennslu og upplýsingatækni ásamt öðrum þátttakendum frá Ítalíu. Til undirbúnings vinna nemendur myndband þar sem aðferðafræði skólans í vendikennslu er kynnt og sömuleiðis upplifun þeirra sjálfra af þeirri aðferðafræði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum vendikennslu
menningarmun þátttakenda verkefnis
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka þátt í hópverkefnum
eiga samskipti innan eigin hóps og við aðra þátttakendur verkefnis
tjá sig bæði munnlega og skriflega á ensku
takast á við mismunandi aðstæður
nota þau forrit og vefi sem eru í boði við verkefnavinnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í samstarfsverkefnum á vegum skólans
kynna niðurstöður hópavinnu bæði á meðan á verkefni stendur og að því loknu
Þátttaka og skil á verkefnum. Nauðsynlegt er að taka þátt bæði í undirbúningi, á vettvangi og í samantekt áfanga.