Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1583157081.83

    Mannfræði - inngangur
    MANN2IN05
    2
    mannfræði
    Inngangur að mannfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er kynning á mannfræði og farið yfir víðan völl í greininni en þó er áherslan aðallega á félagslega mannfræði. Sjónarhorn mannfræðinnar, þ.e. heildræn sýn og afstæðishyggja eru leiðarstjörnur í áfanganum og út frá þeim eru nokkur af helstu viðfangsefnum mannfræðinnar kynnt, til að mynda: fjölskylda og hjúskapur, sifjakerfi og ættrakning, hópamyndun, stjórnmál, stríð og friður, trú og tákn, viðskipti og hagkerfi – hagræn mannfræði. Þá eru rannsóknaraðferðir mannfræðinnar kynntar.
    INNF1IF05 eða sambærilegur inngangsáfangi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu mannfræðinnar og helstu greinum hennar
    • nokkrum helstu hugtökum, kenningum og kenningasmiðum
    • rannsóknaraðferðum mannfræðinnar
    • sérstöðu mannfræðinnar og skyldleika við aðrar greinar félagsvísinda
    • uppruna mannsins sem tegundar og þróun hans fram á okkar daga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita helstu hugtökum og kenningum mannfræðinnar á einföld dæmi
    • tjá sig í ræðu og riti út frá orðræðu og nálgun mannfræðinnar
    • lesa fræðilegan texta í mannfræði
    • leita traustra heimilda og geta vitnað til þeirra á viðurkenndan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita sjónarhorni afstæðishyggju á samfélagsleg mál og geti greint eigin viðhorf og annarra út frá henni
    • taka rökstudda afstöðu til mannfræðilegra álitamála
    • beita félagsfræðilegu innsæi til að greina tengslin á milli einstaklings og samfélags á gagnrýninn hátt
    Leiðsagnarmat