Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1583318753.92

    Handverk rafiðna, lóðningar og rafeindarásir
    VGRT1GA04(AR)
    5
    Verktækni grunnnáms
    Verktækni grunnnáms
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    AR
    Nemendur læra grunnatriði við smíði rafeindarása. Fá upplýsingar um efnisfræði íhluta rafeindatækninnar og virkni þeirra. Nemendur læra að beita helstu verkfærum eins og lóðbolta, tinsugu, bítara, töngum, klippum, skrúfjárnum og skiptilyklum. Nemendur smíða einfaldar rafeindarásir og fá þjálfun í beitingu verkfæra. Nemendur gera mælingar á rásinni til að styrkja hæfni til mælinga á spennu, viðnámi og straumi í tengslum við rafmagnsfræði.
    Grunnskóli með einkunnina B í íslensku, ensku og stærðfræði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni lóðbolta, lóðstöðva og mikilvægi hitastigs.
    • efnisfræði íhluta.
    • efnasamsetningu lóðtins.
    • leiðni mismunandi efna.
    • myndun tæringar og spennu milli efna.
    • hvernig meðhöndla skal verkfæri.
    • hvernig meðhöndla skal fjölsviðsmæla.
    • helstu gerðum prentplatna.
    • helstu öryggisatriðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • stilla og hreinsa lóðbolta.
    • lóða rafeindarás án kaldra lóðninga.
    • nota tinsugu eða tinhreinsivír.
    • beygja og fella íhluti í prent svo vel fari og setja í prentplötu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja upp einfalda rafeindarás á blaði og/eða í rásaforriti.
    • snúa rásinni yfir á veró borð.
    • rjúfa og tengja þar sem við á.
    • lóða íhluti án kaldra lóðninga.
    • lóða íhluti með hámarksleiðni.
    • losa íhluti upp án þess að skemma þá.
    • prófa rásina með fjölsviðsmæli.
    • bilanagreina ef rásin virkar ekki.
    Námsmat er felst í símati sem byggt er upp á a.m.k. 5 matsþáttum og vegur enginn þáttur yfir 35%.