Nemendur læra að beita rásahermiforritum til að teikna og prófa einfaldar rafeindarásir. Nemendur beita þekkingu sinni til að smíða rafeindarásir með að minnsta kosti 10 íhlutum. Nemendur setja upp og tengja íhluti á prentplötu. Nemendur smíða einfalt box eða kassa úr áli, blikki eða plexigleri. Nemendur lesa teikningu frá kennara og læra um hlutverk íhluta og virkni. Nemendur smíða rásir, beita mælitækjum til að kanna virkni rása og átti sig á hvaða afleiðingar það hefur ef einstakir íhlutir bila. Með mælingum og aðstoð kennara gera þeir einfalda bilanaleit.
VGRT1GA04AR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mælingum með fjölsviðsmælum og sveiflusjám.
sambandi milli straums, spennu og viðnáms.
breytingum sem verða á spennu ef viðnám breytist.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lóða gallalaust íhluti á prentplötu.
tengja og raða saman ólíkum íhlutum rafeindabúnaðar.
framkvæma viðnámsmælingar í rafeindabúnaði með tilliti til annara íhluta.
spennumæla virkar rásir.
reikna strauma út frá viðnámi og spennu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
teikna rafeindarás á blað eða í teikniforriti.
reikna afltöku rásarinnar.
reikna strauma út frá mælingum á spennum og viðnámi.
skilja og geta útskýrt virkni rása.
Námsmat felst í símati sem er byggt upp á a.m.k. 5 matsþáttum og vegur enginn einn þáttur yfir 35%.