Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1583403223.43

    Sérhæfð lagnakerfi I
    SÉLA2PL03(AB)
    1
    Sérhæfð lagnakerfi
    Pípulagnir
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    AB
    Í áfanganum er farið yfir ýmis sérhæfð lagnakerfi sem eru mikilvægur hluti af verksviði pípulagningamanna. Fjallað er um snjóbræðslu- og vatnsúðakerfi, hreinsi- og hitakerfi fyrir sundlaugar, lífræn hreinlætiskerfi og rotþrær. Lögð er áhersla á að nemendur læri um uppbyggingu þessara kerfa, sérkenni þeirra, lagnaefni, dælu- og stjórnbúnað.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • snjóbræðslukerfum og lagnaefni og búnaði fyrir þau.
    • grunnreglum fyrir lögn og tengingu.
    • stýringum og reglun fyrir snjóbræðslukerfi.
    • notkun millihitara og frostlagar á snjóbræðslukerfi.
    • vatnsúðakerfum til brunavarna.
    • virkni loftþjappa, lögn þrýstiloftsleiðslna og öryggiskröfum í vatnsúðakerfum.
    • grunnatriðum í hreinlætis- og hitakerfum sundlauga.
    • lífrænum fráveitukerfum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja lagnaefni og búnað fyrir snjóbræðslukerfi.
    • útfæra lagnir snjóbræðslukerfa í gamlar og nýjar tröppur.
    • meta undirlag og þekingarefni fyrir snjóbræðslulagnir og kanna hæðarlegu.
    • leggja vatnsúðakerfi, setja upp og tengja tilheyrandi stjórntæki.
    • setja upp lífræn salerni og rotþrær.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja snjóbræðslukerfi við mismunandi aðstæður og skilyrði.
    • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
    • tengja loftþjöppur, leggja loftþrýstilagnir og setja upp nauðsynleg stjórn- og öryggistæki í vatnsúðakerfum.
    • leggja hreinsilagnir og setja upp tilheyrandi búnað fyrir sundlaugar og gangsetja kerfin.
    • setja upp og tengja lífræn salerni og rotþrær.
    Símat og verkefnaskil