Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1583403591.4

    Sérhæfð lagnakerfi II
    SÉLA3PL03(BB)
    1
    Sérhæfð lagnakerfi
    Pípulagnir
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    BB
    Í áfanganum er haldið áfram umfjöllun um sérhæfð lagnakerfi en nú með áherslu á gaskerfi, þrýstilofts- og súrefniskerfi á sjúkrahúsum, hita-, vatns- og fráveitukerfi sveitarfélaga. Gerð er grein fyrir uppbyggingu þessara kerfa, sérkennum þeirra, lagnaefnum, dælu- og stjórnbúnaði. Jafnframt er farið í grundvallaratriði kælitækni með áherslu á kælirafta og sérstaklega farið yfir minni kælikerfi fyrir verslanir og tækja- og efnisþörf þeirra. Nemendur fá yfirsýn yfir helstu lagnaefni í hita-, vatns- og fráveitur og tengingar vegna þeirra lagna og kynnast varmadælum, uppbyggingu þeirra og virkni.
    SÉLA2PL03AB
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • efnum og búnaði sem notaður er í gas-, þrýstilofts- og súrefniskerfi.
    • festingum, stýringum og öryggisbúnaði fyrir gas- og loftlagnir í byggingum.
    • hlutverki, uppbyggingu og virkni gasbúnaðar til matargerðar.
    • áhöldum og tækjum sem notuð eru við lagningu gas- og loftlagna.
    • aðferðum og búnaði til að prófa gas- og loftkerfi og öryggisbúnað þeirra.
    • öryggisreglum og hlífðarbúnaði fyrir viðkomandi áhöld og tæki.
    • kælitækni og lagningu kælilagna/-rafta
    • veitukerfum sveitarfélaga.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja lagnaefni og tengi með hliðsjón af aðstæðum.
    • velja rétt áhöld og tæki til að tengja lagnaefni og búnað.
    • velja lagnaleiðir og einangrun fyrir gas- og loftlagnir og staðsetningu gasbúnaðar.
    • meta kröfur um brunavarnir við lagnir milli brunahólfa.
    • setja upp, tengja og gangsetja varmadælur.
    • setja upp kælirafta, leggja að þeim lagnir, tengja og gangsetja.
    • velja efni og lagnatækni við vatns- og hitaveitulagnir sveitarfélaga.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja minni gas-, þrýstilofts- og súrefniskerfi í byggingar í samræmi við reglur og yfirfara öryggisbúnað.
    • áætla gas- og loftnotkun og reikna rörasverleika.
    • skrá og merkja ventla og stýritæki og setja upp skýringartöflur.
    • setja upp og tengja endabúnað og ganga úr skugga um virkni tækja í samræmi við reglur framleiðenda.
    • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
    • leggja kælikerfi, setja upp stýribúnað og gangsetja kerfin.
    • leggja frárennsliskerfi úr steinrörum í götur og bílastæði.
    • leggja vatns- og hitaveitulagnir úr mismunandi efnum.
    Símat og verkefnaskil.