Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1583404871.61

    Teikningar og verklýsingar í pípulögnum I
    TEIK1PL04(AB)
    10
    teikning
    Pípulagnir
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    AB
    Í áfanganum tileinka nemendur sér undirstöðuþætti lagnateikninga fyrir heitt og kalt vatn innanhúss. Þeir læra að lesa lagnateikningar af slíkum kerfum og teikna bæði flatar- og rúmmyndir. Kennd eru grunnatriði uppdrátta fyrir smærri vatnslagnakerfi í íbúðarhús, tákn og teiknistaðlar. Nemendur læra að tengja lagnauppdrætti við hönnunarforsendur vatnslagnakerfa samkvæmt byggingareglugerð og stöðlum, helstu fagheiti, efnisnotkun, málsetningar m.m. Komið er inn á verklýsingar fyrir smærri lagnakerfi og nemendur gera efnislista á grundvelli lagnauppdrátta. Kennslan byggist að miklu leyti á verkefnum þar sem reynt er að tengja saman gerð lagnauppdrátta, verkgögn og hönnunarforsendur.
    GRTE1GN04AB
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • útfærslum smærri lagnakerfa fyrir heitt og kalt vatn innanhúss.
    • ákvæðum byggingareglugerðar um lagnir fyrir heitt og kalt vatn.
    • íslenskum stöðlum um lagnakerfi fyrir heitt og kalt vatn.
    • stöðlum um mannvirkja- og tækniteikningar sem tengjast lagnauppdráttum.
    • tæknilegum útfærslum vegna einangrunar og brunavarna.
    • öllum gerðum uppdrátta og teikninga og teiknitáknum fyrir vatnslagnir.
    • fagheitum og efnisnotkun í lagnateikningum fyrir heitt og kalt vatn.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota Rb-blöð við hönnun og teikningar.
    • lesa og vinna með teikningar af vatnslögnum innanhúss.
    • lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar.
    • beita reglum um blaðstærðir, mælikvarða og teikniáhöld.
    • beita teiknireglum fyrir teikningu neysluvatns- og hitalagna.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera einfalda verklýsingu með hliðsjón af lagnauppdrætti.
    • gera efnisáætlanir fyrir einföld lagnakerfi.
    • teikna einföld lagnakerfi fyrir heitt og kalt vatn í íbúðarhúsnæði.
    • gera fríhendisrissmyndir, flatar- og rúmteikningar af lagnakerfum.
    • gera deiliuppdrætti af lagnakerfum fyrir heitt og kalt vatn innanhúss.
    Símat og verkefnaskil