Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1584011809.18

    Raflagnir.Húsveitur og mælar
    RAFL2GA04(CR)
    3
    Raflagnir
    Raflagnir
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    CR
    Í áfanganum er aðaláhersla lögð á varbúnað, vírsverleika og rafdreifiskápa. Nemendur kynnast tæknilegum tengiskilmálum. Farið er í uppbyggingu á minni húsveitum, staðsetningu á búnaði, lagnaleiðir og brunaþéttingar kynntar. Innfelldar og áfelldar lagnir. Farið er í reglugerðarákvæði varnarráðstafana sem varða snerti- og brunahættu. Lögð er áhersla á skilning nemenda á varbúnaði, bruna- og snertihættu. Skoðað er hvernig raflagnir geta verið misjafnar eftir aðstæðum og kröfum og hvernig prófun á rafmagnsöryggi fer fram. Nemendur kynnast ljósleiðurum helstu gerðum, umgengni og splæsingu. Nemendur fá innsýn í dyrasímakerfi og loftnetskerfi, uppbyggingu og tengimöguleika. Nemendur fá þjálfun í notkun mælitækja og lögð er áhersla á fagmannleg vinnubrögð. Nemendur kynnist slysavörnum við rafvirkjavinnu.
    RAFL1GA04BR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hættu á skemmdum á búnaði þegar mælitækjum er beitt.
    • reglum um sverleika leiðara miðað við áraun og staðla sem um þær gilda.
    • reglum um varúðarráðstafanir er varðar snerti- og brunahættu.
    • mælitækjum sem notuð eru við bilanaleit.
    • uppbyggingu minni veitna og mikilvægi efnisvals í þær.
    • uppbyggingu og mismunandi flokkum ljósleiðara.
    • öryggi þess að hafa skipulag og þrifalegt á vinnustaðnum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • mæla einangrunarbilun og spennur í veitum.
    • leggja rör og strengi og ganga frá dreifiskáp.
    • lesa úr uppdráttum og fyrirmælum.
    • tengja ýmsar gerðir fjarrofa.
    • splæsa ljósleiðara.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja raflagnir í minni veitur.
    • draga út fyrir mælum.
    • vinna eftir fyrirmælum.
    • gera sér grein fyrir röð varnarráðstafana í húsveitum.
    • ákveða vírsverleika lagna
    • einangra, mæla og finna bilun í húskerfi
    Námsmat felst í símati sem er byggt upp á a.m.k. 5 matsþáttum og vegur enginn þáttur yfir 35%.