Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1584441109.96

    Raflagnir. Efnisfræði og lagnir
    RAFL1GA04(AR)
    4
    Raflagnir
    Raflagnir
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    AR
    Nemendur kynnast starfi og starfssviði rafiðnaðarmannsins og öðlast skilning á efnisfræði raflagna. Fjallað er um framleiðslu rafmagns og mismunandi gerðir flutningskerfa og nemendur eru fræddir um virkni ólíkra rofa með tengi- og smíða verkefnum. Einnig kynnast nemendur því efni sem notað er í einfaldar raflagnir, fá fræðslu um öryggismál og þeim kynntar reglugerðir sem í gildi eru og snerta námsþætti áfangans. Nemendur fá innsýn í þróun öryggismála, hvernig reglugerðir og staðlar koma við sögu og virkni veitukerfa, varnaraðgerða og heimtauga.
    Grunnskólapróf með lágmarkseinkunn B í íslensku, ensku og stærðfræði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öryggismálum og reglugerðum er varða vinnu við rafmagn.
    • verkfærum rafiðnarmannsins og helstu störfum.
    • virkni mismunandi rofa.
    • helstu teiknitáknum.
    • litakóðum víra.
    • mikilvægi staðla og reglugerða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja rofa, samrofa, krónurofa og krossrofa.
    • leggja kapallagnir fagmannlega á lítið spjald.
    • leggja röralagnir fagmannlega á lítið spjald.
    • tengja falir, klær og fjöltengi.
    • beita réttum verkfærum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta gert greinarmun á lagnabúnaði með tilliti til aðstæðna.
    • geta greint mun á faglegum og ófaglegum vinnubrögðum.
    • gæta fyllsta öryggis í umgengni við rafmagn
    Námsmat er í símati sem er byggt upp á a.m.k. fimm matsþáttum og er enginn þáttur yfir 35%.