Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1584521264.08

    Prentun og bókband - Inngangur
    PRBÓ1UF05(AU)
    1
    Prentun og bókband
    Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    AU
    Áfanginn gefur nemendum innsýn í hvað prentun og bókband stendur fyrir í dag, hvað felst í starfi prentara og bókbindara og hver helstu verkefni þeirra eru. Einnig kynnast nemendur einföldum atriðum í forvinnslu prentgripa. Verkefnin í áfanganum felast í kynningu á mismunandi vinnsluaðferðum prentunar og bókbands með tilliti til véla- og tækjakosts, pappírsmeðferðar, undirstöðuatriða í skurðarvinnu, grunnatriða við vinnu við brotvélar, handbókbands og hand‐ og vélagyllingar. Kynntir eru staðlar fyrir pappírsstærðir og lögð áhersla á að val á pappír miðist við fyrirhugaða notkun. Fjallað er um framleiðslu pappírs og endurvinnsluferla hans. Í áfanganum verður einnig gerð grein fyrir ýmsum prentaðferðum sem notaðar eru í dag og þeim nýjungum sem eru að ryðja sér til rúms. Verkefnin og viðfangsefnin eru ýmist í formi verkefna sem nemendur vinna sjálfir eða skrifleg verkefni sem kennari leggur fyrir. Prentun og bókband eru lokaverkþættir prentverksins og nemendur kynnast ólíkum vinnslumöguleikum varðandi lokafráganginn. Kynnt eru samhliða störf innan prentiðngreinanna þ.e.a.s. grafísk miðlun (prentsmíð), prentun og bókband.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • starfi prentara og bókbindara.
    • vinnslustigum á verkferlum prentunar og bókbands.
    • hvað prentun og bókband stendur fyrir í dag.
    • grunnverkþáttum prentunar og bókbands.
    • starfssviði og starfsumhverfi innan upplýsinga‐ og fjölmiðlagreina.
    • þeim námsleiðum sem taka við að loknu grunnnámi upplýsinga‐ og fjölmiðlagreina.
    • öryggisreglum við vélavinnu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla pappír varðandi stokkun og trefjastefnu.
    • vinna við grunnatriði prentunar og bókbands.
    • vinna við grunnatriði skurðarvinnu.
    • þekkja grunnatriði forvinnslu prentgripa.
    • þekkja vinnsluferla stafrænnar prentunar.
    • nota litrófsmæla.
    • vinna við einfalda handbókbandsvinnu.
    • afla sér þekkingar með sjálfstæðum vinnubrögðum.
    • vinna í hóp.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna einfalda prent og bókbandsvinnu ýmissa prentgripa, velja og beita mismunandi vinnsluaðferðum í prentun og bókbandi.
    • skilja vinnsluferlið með tilliti til stafrænnar vinnslu.
    • geta valið pappírstegundir almennt í framleiðsluferlinu.
    • geta lýst gæðakerfum í prentun og bókbandi.
    • þekkja muninn á litakerfum í prentun.
    • gera sér grein fyrir hvar áhugasvið hans liggur.
    • miðla þekkingu til annarra (jafningjafræðsla).
    • beita sjálfstæðum vinnubrögðum við vinnu og þekkingarleit.
    Símat